Site logo
  • Heim
  • Nýjar og notaðar vélar
    • Dráttarvélar
    • Heyvinnutæki
    • Jarðvinnslutæki
    • Önnur tæki
Innskrá
Listing cover image

Massey Ferguson RB 3130 PROTEC rúllusamstæða

Massey Ferguson RB 3130 PROTEC rúllusamstæða

  • Upplýsingar
  • Hafa samband
  • prev
  • next
  • Merkja
  • Deila
  • Tilkynna
  • prev
  • next
Lýsing

  Massey Ferguson RB 3130 F PROTEC

Rúllusamstæða

 

Massey Ferguson hefur hannað trausta og áreiðanlega rúllusamstæðu sem bændur nútímans geta treist á.

Haft er að leiðarljósi við gerð vélarinnar styrkur, áreiðanleiki og ekki síst einfaldleiki í notkun.

Vélin er afar einföld fyrir stjórnandan og þægileg í umgengni, svo sem umskipti netrúlla, plastrúlla í pökkunarborði og svo daglegu viðhaldi svo sem hreinsun og smurningu.

Hún vinnur alla ferla sína með miklum áreiðanleika og nákvæmni. Er lipur og þægileg aftan í dráttarvélinni og fer vel með það land sem hún fer yfir.

 Sópvindan

      Með hönnun sinni á brautarlausri sópvindu hefur Massey Ferguson tekist að auka innmötunnarhraða, minnka hávaða  og dregið úr viðhaldsþörf með fækkun hreyfanlegra hluta.

Sópurinn hefur 5 tindaraðir og er boðin í vinnslubreidd 2,25 m eða 2,40 m er staðsettur mjög nálægt hnífavalsinum sem tryggir öruggari innmötun og minkar hættu á stíflum.              

 

Skurðarbúnaður

      Xtra-cut heysöxunarbúnaður er fáanlegur í 3 útfærslum með 13, 17 eða 25 hnífum.

17 og 25 hnífaborðunum er skipt upp í 2 sett af hnífabönkum.  Notandin getur valið úr í stjórntölvu 3 notkunarmöguleika, 1 sett í notkun, 2 sett í notkun eða engin hnífur í notkun.

 Hnífarnir eru þeir lengstu á markaðinum og útfærðir á þann máta að ekkert hey fari óskorið fram hjá þeim.

Öflugur hnífavals flytur heyið yfir hnífana.              

 

Stíflulosun

      Hydroflex control stíflulosun er staðalbúnaður sem eikur afköst og þægindi.

Hydroflex vinnur á tvennan máta,

  1. Sjálfvirk færsla á fremri hluta í gólfi innmötunarferlisins sem eykur rými innmötunar og tekur yfir 80 % af stíflumöguleikum án aðkomu stjórnandas.
  2. Vökvastýrð lækkun innmötunargólfsins til að fjarælgja stærri stíflur.

Komi stór stífla í innmötun heysins setur stjórnandin að stað vökvastýrt ferli sem lækkar aftari hluta innmötunargólfsins. Heyið á þá greiða leið í gegn og inn í vélina.                         

 

Rúlluhólfið

      Rúlluhólfið er gert úr 18 stk „Powergrip“keflum með 10 riflum á hverju kefli.

Hönnun, gæði og áreiðanleiki þeirra er þekkt og hafa þau sannað sig undir miklu álagi.

Lögun rúlluhólfsins er með „spíral“ form sem hefur örlítið minna þvermál að framan. Þetta auðveldar inntöku og snúning heysins, eykur þéttleika rúllunar og tyggir góða ásetningu netsins.

Ný hönnun rúllusamstæðunnar hefur minna innmötunar horn og er lægra byggð. Það gerir innmötun auðveldari og vélin er öruggari í notkun í hæðóttu og hallandi landi.

 

Netbinding

      Varionet netbindikerfið er þrautreynt og er hannað til að ráða við mismunandi breiddir og stærðir netrúlla.

Það skilar fastri bindingu sem heldur fast utan um rúlluna svo hún er sem þéttust.

Geymsluhólf fyrir auka netrúllu er staðsett þannig að auðvelt og fljótlegt er að koma henni í notkunnarstöðu.        

 

Stjórnbox

      Rúllusamstæðan er ISOBUS samhæfð og þarf því ekki stjórnbox í því tilviki sem dráttarvélin er einnig ISOBUS samhæfð.

Í þeim tilvikum sem dráttarvélin er ekki ISOBUS samhæfð er notað E-link PRO isobus stjórnbox með snertiskjá og í lit. (þetta stjórnbox má nota á öll ISOBUS samhæfð tæki frá Massey Ferguson)

Stjórnkerfið er afar notandavænt og auðvelt, myndrænar skýringar og stuttur aðgangur að hverri aðgerð, svo sem myndavél, stjórnun hnífa, stilling bindinets, túnnamynni, stilling plastbúnaðar, vinna á flatlendi – vinna í hallandi landi, stíflulosun og fl.

Stjórnbox fyrir handvirkar aðgerðir er staðsett á pökkunarvél til þæginda við umskipti á pökkunarplasti.

          E-link Pro Isobus     ISOBUS     Stjórnbox  handvirkra aðgerða á pökkunarvél 

 

Drifbúnaður

      Aflúttaksknúið drif rúlluvélarinnar deilir drifkraftinum til beggja hliða.

Annarsvegar til að kníja hnífavalsin og hins vegar til að kníja kefli vélarinnar.

Legur rúlluvélarinnar eru byggðar til að bera mikið álag.

Hönnun leguhaldara fyrir keflin býður upp á smávægilegan hreyfanleika keflana sem minkar líkur á yfirálagstjóni.

Sjálfvirkt smurkerfi er fyrir legur keflana.

Keðjur eru úr hágæða stáli og er sjálfvirkt smurkerfi sem tyggir þeim næga smurningu.                    

 

Færsla rúllu

Massey Ferguson hefur hannað færsluferli rúllunnar úr rúlluhólfinu yfir á pökkunnarborðið afar vel og er færsluferli stutt.

Þegar rúlluhólfið oppnast tekur færsluskúffa / armur við henni, þessi skúffa hefur stýringar á báðum hliðum sem tryggir að rúllan fer á mitt pökkunnarborðið, jafnvel í hallandi landi. Pökkunarborðinu er hallað á móti skúffuni til að tryggja enn frekar örugga færslu rúllunar og stytta færslutíman. Pökkun rúllunar er hafin áður en lokið hefur náð að lokast.

Ferli frá því að rúlluhólf oppnast þar til það er lokað aftur er aðeins 9 sekundur.     

 

Pökkun

Pökkunarborðið er lágbyggt og í láréttri stöðu sem tryggir örugga og hraða pökkun janvel í hallandi landi. Pökkunarhringur vökvadrifin og knúin tveim gúmmíhjólum er með tvö plastkefli sem snúast hringin í kring um rúlluna sem gefur jafna og góða strekkingu á plastfilmuna. Keflahaldararnir hafa skinjara sem gefa upplýsingar um stöðu plastsins, í notkun-slitið-búið.

Hægt er að ráða strekkingu plastsins með að skipta út tannhjólum í plasthöldurunum og er val um 55%, 70% eða 90%. Ræðst af gerð plast sem notað er.

Að pökkun lokinni er pökkunarborðinu hallað og rúllan lögð mjúklega að jörðu.

Aðgerðum og ferli pökkunarferilsins er stjórnað úr stjórntölvu hjá ökumanni og er val um handvirka eða sjálfvirka stjórnun.

Stjórnbox er staðsett á vinstri hlið vélarinnar fast við pökkunarhringin þar sem hægt er að framkvæma handvirka stjórnun búnaðarins.

Myndavél sem nær yfir svæði pökkunarferlis birtir mynd í stjórntölvu og hefur stjórnandi góða yfirsýn yfir vinnsluferlið.  

 

Yfirsýn vélar

Öflug sambyggð rúllu og pökkunarvél:

Þvermál rúllu 1,25 m.

Breidd rúllu   1,23 m.

Rúmmál 1,5 rúmmetrar.

Dekk 620/55R26,5

Aflþörf í Kw og Hp  75 / 120

Vökvastútar 2 + LS tenging

Í fluttningstöðu: Lengd 5,9 m  Hæð 3,0 m  Breidd 285 m  Þyngd um 5,995 kg

 

 Upplýsingar hjá sölumönnum í síma 

4800080

4800400

 

 

                                                                                                                

 

Tæknilegar upplýsingar
  • Ástand
    Nýtt
  • Árgerð
    2021
Tegund
  • Heyvinnutæki
Framleiðandi
  • Massey Fergusson
Staðsetning

Selfoss

Aðalmynd
Myndagallerý
Senda seljanda skilaboð
Tilboð í vél
First
Kr.

Aðrar áhugaverðar vélar.

Sampo Rosenlew Comia C8

  • Suðurland
Á tilboði
kr. 11.490.000
Til sölu
  • 2013
  • Dráttarvélar
  • Spjald
  • Merkja

Valtra N103 H5

  • Selfoss
Á tilboði
  • 2018
  • Dráttarvélar
  • 1021
  • Spjald
  • Merkja

Valtra T182 Direct

  • Suðurland
Á tilboði
kr. 7.290.000
Til sölu
  • 2012
  • Dráttarvélar
  • Spjald
  • Merkja

© Höfundaréttur 2024 Aflvélar

Cart

  • Facebook
  • X
  • WhatsApp
  • Viber
  • Telegram
  • LinkedIn
  • Tumblr
  • Reddit
  • VKontakte
  • Mail
  • Copy link
  • Share via...
  • Threads
  • Bluesky